Laugavegurinn 2011 - 5:50:54
20.7.2011 | 22:53
Jæja, verður maður ekki að halda í hefðina og skrifa frásögn af Laugaveginum? Jú, ég held það :)
Undirbúningurinn varð ekki alveg eins og hann átti að vera þar sem ég fékk álagsbrot í ristina í apríl. Ég þurfti því að gjöra svo vel að taka 4 vikna frí frá hlaupum eins fúlt og það nú var. Sem betur fer gréri sprungan nú vel og allt gekk að óskum þegar ég mátti fara að hlaupa aftur þótt ég fyndi að hraðinn hefði aðeins dottið niður. Eftir Tindahlaupið (5 tinda), Gullsprettinn og Miðnæturhlaupið sá ég að miðað við sömu hlaup í fyrra þyrfti allt að ganga upp hjá mér á Laugaveginum til að ná sama tíma því tímarnir í þessum hlaupum í ár voru allir aðeins lakari en í fyrra. Ákvað að stefna á að gera alveg eins og í fyrra og vona svo það hefðist. Skrifaði í lófann millitímana frá því í fyrra og það fyndna var að þeir stóðust nokkurn veginn upp á mínútu. Þriggja mínútna bætingin sem ég náði núna lá í því að í fyrra stoppaði ég við Bláfjallakvísl en ekki núna. Markmiðið fyrir brot var að ná á pallinn og ég hélt því markmiði til streitu eftir brot þótt ég væri ekki viss um hvað þessar 4 vikur í pásu hefðu mikil áhrif. Það yrði þá bara að hafa það ef það næðist ekki :)
Fyrir hlaup: Það hentar mér ágætlega að taka rútuna um nóttina, truflar mig lítið að vakna svona snemma og ferðalagið fer lítið í mig. Vaknaði 3:10 og fékk mér hálfa beyglu og kaffi. Er svona nokkurn veginn búin að læra á það hvað passar fyrir mig að borða mikið fyrir hlaupið en það er þessi hálfa beygla og svo hálf samloka með sultu í Hrauneyjum. Komum í Landmannalaugar um kl 8 en þar var skítakuldi. Hélt mig að mestu inni í rútu þar til rétt fyrir start og gat ómögulega ákveðið mig hvort ég ætti að leggja af stað í jakkanum eða ekki. Ákvað að lokum að sleppa honum þegar sólin fór að skína og það var rétt ákvörðun því það hitnaði hratt.
Landmannalaugar – Hrafntinnusker, 1:12 (áætlun 1:11): Er alltaf hræddust við þennan legg því ég er ekki sterk í klifrinu (sbr glataða tíma mína upp Esjuna!). Elti Sævar en við vorum búin að ræða að við yrðum svona ca samferða án þess þó að vera að bíða hvort eftir öðru. Síðustu hlaup sýndu nefnilega að tímarnir okkar hafa verið mjög svipaðir. Það kom fljótlega í ljós að snjórinn var mikill þetta árið. Snemma sáust smá skaflar og þegar upp var komið var snjóbreiðan óvenjulega löng. Færið yfir hana var þó alveg þokkalegt og ekki mjög blautt. Í skálanum í Hrafntinnuskeri skildi ég eftir vettlingana og eyrnabandið og fékk mér tvö glös af Powerade, hálfan banana og gel. Fyllti svo á brúsana mína þrjá með Powerade. Ég ákvað fyrir hlaup að drekka mestmegnis orkudrykk (las það í grein að maður ætti ekki að blanda saman orku og vatni og ákvað að prófa það) nema drekka smá vatn með geljunum (einu á hverri drykkjarstöð). Ákvað líka að drekka þrjá brúsa á milli stöðvanna og ná þannig að halda mér vel vökvaðri til að sleppa við fjárans krampana.Hrafntinnusker – Álftavatn, 1:10 (áætlun 1:10): Ég var ekki fyrr búin að losa mig við hanskana og lögð af stað frá skerinu að ég flaug á hausinn. Var að blaðra eitthvað við Gumma og Sævar um hvað tímaáætlunin okkar stæðist vel og blabla og bingó, rak tána í stein og allt fór í slow motion. Á þessum millisekúntum sem það tekur að fljúga á hausinn náði ég alveg að hugsa „shit ég er að detta, næ ég að redda mér nei, ég næ því ekki, ég dett á þessa beittu steina ...ég trúi þessu ekki, Agga asni“. Og svo lenti ég. Þegar maður dettur svona sprettur maður náttúrulega á fætur á ofurhraða og fullyrðir að allt sé í besta lagi en ég var samt ekkert alveg viss, var dofin í hendinni og hnénu og það byrjaði að fossblæða úr lófanum. Byrjaði samt strax að hlaupa aftur og Sævar lét mig hafa buffið sitt til að vefja um hendina. Smám saman fann ég sársaukann koma fram í hnénu og hendinni og það fór svolítið með andlegu hliðina. Sá ekki lengur í stelpurnar þrjár fyrir framan mig, Svövu, Ósk og Elísabetu og Sævar og Gummi voru líka fljótlega komnir slatta á undan. Ég fann því ekki alveg gleðina í þessu á tímabili. Jökultungurnar gengu þó vel og slétti kaflinn í Álftavatn leið hratt. Í Álftavatni var svo kominn tími til að taka sig saman í andlitinu. Fór úr peysunni enda orðið vel heitt. Hugsaði með mér að nú væri bara málið að hætta þessum aumingjaskap og klára þetta eins og manneskja. Fékk mér minn næringarskammt, þann sama og í Hrafntinnuskeri og lagði af stað með „nýjan haus“ eftir þennan frekar misheppnaða legg sem þrátt fyrir allt var á réttri tímaáætlun.
Álftavatn – Emstrur 1:38 (áætlun 1:42): Leið strax miklu betur og sérstaklega þegar ég var komin yfir Bratthálskvíslina þar sem ég fékk fyrstu krampana í fyrra (það sat svolítið í mér og ég var hrædd um að lenda aftur í því sama). Enginn krampi lét hins vegar á sér kræla núna (og ekki einn einasti allt hlaupið) og allt að verða bara ljómandi fínt. Hélt góðri siglingu að Bláfjallakvísl og þar voru strákarnir mínir, Andri og Alfreð, mættir á fjórhjólunum. Gott að sjá þá en ég bjóst ekki við þeim fyrr en á söndunum nær Emstrum. Var samferða Elísabetu yfir Bláfjallakvíslina. Stoppaði ekkert við töskurnar sem þar voru og við Elísabet hlupum samferða áleiðis inn á sanda. Þar var Ósk og kvartaði undan maganum, úff, ekki gott, fann til með henni. Eftir litlu drykkjarstöðina kom svo minn tími. Ég gat gefið vel í og fór að ná fólki (m.a. Kristni, Oddi og loks Gumma en þarna var Sævar á eftir mér því hann stoppaði við töskurnar). Í Emstrum voru Andri og Alfreð aftur mættir og ég rétt kallaði hæ og tætti í gegn.
Emstrur – Þórsmörk, 1:52 (áætlun 1:52): Leið vel langleiðina af þessum legg. Lét gossa niður skriðurnar að Emstruánni þótt ég væri ekki með legghlífar til að varna því að fá sand í skóna. Það slapp vel, fékk lítið í þá. Fljótlega eftir ána fór ég að sjá í Svövu og sá strax að hún var ekki alveg í rétta gírnum því ég nálgaðist hana hratt. Hún var þá komin með krampa og leið ekki vel. Skildi hana alltof vel og fannst erfitt að hlaupa framúr henni og skilja við hana svona. En áfram hélt ég og gekk vel fyrir utan smá misskilning þar sem farið er niður af klettinum sem ég kann aldrei á. Þar liggur líka stígur niður í áttina að gljúfrinu og útlendingur sem var á undan mér tók strikið þangað og í hugsunarleysi elti ég og líka Gunnar sem kom á eftir mér (ég ætti þó varla að viðurkenna þetta farandi þessa leið í 6. sinn!!). Ég áttaði mig þó fljótt og snéri við og þeir komu líka fljótlega upp á réttan slóða aðeins lengra frá. Á þessum hluta voru margir á göngu og fólk mjög duglegt að hvetja, ekki heldur leiðinlegt að vera 1. kona og fá ekstra hvatningu (ný upplifun!). Rétt fyrir Ljósána kom þreytan skyndilega yfir mig . Kápan var alveg slatta erfið og niðurleiðin ekki síður aldrei þessu vant því lærin voru orðin mjög súr. Eftir Þröngána byrjaði garmurinn minn að pípa „battery low“ og það blokkeraði tímann (held ég fari að nota bara þennan gamla aftur, hann er miklu betri!). Sá því ekki nákvæmlega hvernig tímanum leið en skógarstígarnir liðu hratt. Geggjað að hlaupa yfir túnið og í mark og eins og sést af myndum úr markinu brosi ég alveg 7 hringi síðustu metrana í mark. Klukkan sagði 5:50:54, sem þýddi 3 mínútna bæting og 1. sætið.
Eftir hlaup: Losaði blóðstorknaða buffið úr hendinni og lét lækninn kíkja á sárið. Fyrst vildi hann sauma en svo kom í ljós að ekki var hægt að sauma því ég hafði skilið eftir bita úr lófanum uppi á Hrafntinnuskeri og því ekkert til að sauma :) Sárið var því bara hreinsað. Fór í sturtu og fattaði um leið og ég var komin undir bununa að ég hafði gleymt að hafa með mér handklæði. Þvílíkt klúður. Í því sem ég er svo að pæla í hvort væri betri kostur að þurrka sér á skítugu hlaupafötunum eða flísteppinu kemur Sigrún til að tékka á mér og að sjálfsögðu hafði hún handklæði á sér, ávallt viðbúin :) Eftir sturtu var það svo chill, grill og verðlaunaafhending. Skemmtileg tilbreyting að vera á pallinum! Tók svo rútuna á Hvolsvöll um kvöldið og henti mér upp í sófa hjá tengdó. 6. Laugaveginum lokið!
Lærdómur: Þetta næringarplan held ég að hafi komið í veg fyrir krampana sem ég á svo til að fá: 3 brúsar af orku á milli drykkjarstöðva, tvö glös af orku, banani og gel á hverri stöð (+ vatn til að skoða niður). Tók svo eitt aukagel á söndunum auk þess sem ég tók magnesíumtöflur bæði við Hvanngil og á söndunum. Drakk sem sagt mjög mikið (amk á minn mælikvarða). Og jú, annar lærdómur ... ekki reyna að tala þegar hlaupið er yfir grjót 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Heil
24.5.2011 | 09:41
"Engin merki um brot lengur" sagði Skúli slysólæknir mér í gær. Mikið er ég glöð!
Ég hef verið að spá í af hverju þetta hafi gerst og er helst á því að mikil hlaup á bretti hafi kannski haft sitt að segja, (þótt það sé náttúrulega bara gisk). Ég ætla því að halda mig frá þeim núna á næstunni og hlaupa í grasi og á öðru mjúku undirlagi. Vonandi er þetta svo endirinn á þessu leiðindaveseni. Amen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
My left foot
5.5.2011 | 11:34
Hvíldin gengur vel, komnar rúmar 2 vikur og pásan því meira en hálfnuð. Ég fékk í gær myndirnar sem voru teknar af fætinum á slysó. Yfirleitt þoli ég ekki myndir af sjálfri mér en þessi er nú bara nokkuð góð, hoho. Og ef ég rýni mjög vel þá held ég að ég sjái kannski þessa blessuðu sprungu ... ef ég rýni mjöööög vel ... samt ekki viss ... en þetta lítur amk ekki út eins og brotinn blýantur og það er gott :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mér finnst gaman að hjóla
27.4.2011 | 09:49
Mér finnst gaman að hjóla, mér finnst gaman að hjóla, mér finnst gaman að hjóla, mér finnst gaman að hjóla, mér finnst gaman að hjóla... bara segja þetta nógu oft ... :) Annars er núna komin ein vika af fjórum. Þetta líður hratt.
En að öðru en mínum blessaða fæti. Nonni bróðir, Nadía og Lilja voru hjá okkur um páskana. Frábært að fá þau í heimsókn. Eiríkur var smá tíma að jafna sig á innrás litlu frænku sinnar (eða stóru frænku öllu heldur því hún er 5 vikum eldri en hann) en eftir fyrstu tvo dagana var hann farinn að leyfa henni að taka upp eitt og eitt dót.
Hér er maður enn ekki alveg að gúddera þessa stelpu
En hér er maður bara orðinn nokkuð sáttur við félagsskapinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fourth metatarsal stress fracture :(
23.4.2011 | 13:07
Verkurinn í fætinum fór ... en svo kom hann aftur og fór .... og kom svo aftur fyrir tveimur dögum verri en áður. Arg. Fór því á slysó í morgun og niðurstaðan ... fourth metatarsal stress fracture eða lítil sprunga í fjórða tábeininu fyrir miðju. Ekkert hlaup í 4 vikur takk fyrir og þar með fór Köben. Ég ætla ekki að afskrifa meira í bili, tek stöðuna aftur þegar ég verð búin að fara aftur í röntgen eftir mánuð. Og í staðinn fyrir að ákveða að þetta sé allt ömurlega fúlt og leiðinlegt ætla að ég horfa á þetta sem jákvætt. Nú fer ég að lyfta (eitthvað sem ég hef aldrei tíma til að gera) og hjóla og kem alveg svaðalega sterk út úr þessu :)
Þarna er þetta - á græna hringnum:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Kökuhlaupið
11.4.2011 | 14:22
Jæja, það lítur út fyrir að ég haldi fætinum, ég var alveg búin að gúggla hann af mér fyrir helgi og greina sjálfa mig með allar týpur af álagsbrotum og veseni :) Fékk svo tíma hjá sjúkraþjálfara á föstudaginn sem nuddaði og laser-aði og bingó ... á laugardaginn var ég eins og ný. Svo ný að ég fór með familíuna í Kökuhlaupið í Flóanum. Þar var að sjálfsögðu hífandi rok eins og alltaf (sem bara tilheyrir í þessu hlaupi) og þetta árið var meðvindur upp að afleggjara eins og í fyrra og afar hressilegur mót- og hliðarvindur eftir 3 km að 8 km. Kláraði á 45:52 sem ég er bara sátt við í rokinu. Anton og Eyrún fóru 3 km og Eyrún tók að sér að vera fylgdarmaður Antons í hans fyrsta keppnishlaupi. Kaffi og kökur á eftir að hætti kvenfélagsins og svo var brunað á Hvolsvöll í ennþá meira kaffi og kökur að hætti tengdamömmu.
Fóturinn enn í lagi eftir helgina og ég bara vona að þetta sé úr sögunni, prófa hann aftur á eftir.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Buhu
8.4.2011 | 10:31
Oj hvað ég er í mikilli fýlu núna (sem skýrir bloggleysið síðustu daga). Ástæðan er sú að mér er svo illt í öðrum jarkanum. Mig langar helst að öskra af geðvonsku og stappa niður fótunum af illsku, það væri bara svo andsk... sárt.
Buhu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur
28.3.2011 | 14:00
Þessi ungi maður fær rör í eyrun á morgun. Það er nefnilega komið í ljós að hann er allur stíflaður í eyrunum greyið eftir allmargar eyrnabólgur frá því í haust. Að öllum líkindum heyrir hann varla hálfa heyrn og er sífellt að fá hellur, sem skýrir hin ófáu pirringsköst og hversu seinn hann er að byrja að tala. Ég meina, hvernig er hægt að ætlast til að maður sé alltaf stilltur og prúður og það kjafti á manni hver tuska þegar maður heyrir ekkert nema andardráttinn í sjálfum sér svo mánuðum skiptir? Ég myndi líka henda mér öskrandi í gólfið reglulega í mótmælaskyni ... og ekki segja múkk þess á milli :)
Hlaup á laugardag: 27,2 km, fyrst 7 með Sif og Sigrúnu og svo út á Nes með hópnum. Var með fullt af orku með mér og leið voða vel bara. Nú fer maður að lengja.
Hlaup á sunnudag: 10,3 km utanvega í hlíðum Úlfarsfellsins með Yfir Esjuna með Helga Björns í eyrunum. Kom svo beint heim í rjúkandi pönnsur og latte, næs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skór, skór, skór og aftur skór ...
25.3.2011 | 10:39
... það eina sem hún hugsar um er bara skóóór... Þetta eru nýjustu skórnir í skápnum og mér líst afar vel á þá, reyndar bara búin að prófa þessa svörtu en hlakka til að komast á hinum í grjót og gras, drullu og dý :)
Under Armour spectra II
Under Armour Janan - utanvegaskór
Mikið óskaplega verður gott að taka aftur langt á laugardegi úti en ekki inni á bretti. Hingað til hef ég haldið því fram að ég og brettið séum miklir vinir, en það er aðeins farið að slettast upp á vinskapinn núna.
Hlaup í fyrradag: 14 km í WC Mos. 3 km upphitun - 10 km tempó - 2 km niðurskokk. Gerði sömu æfingu og á föstudag í WC Kringlu til að bera saman brettin eftir umræðuna um að brettin þar væru léttari. Ég fann engan mun :) Þetta var þó mjög óvísindaleg könnun og á engan hátt marktæk þannig að það má alveg enn velta vöngum ;)
Hlaup í gær: 9,1 km með Sif í hádeginu. Tókum efri hluta Powerade á rólegu kjaftatempói.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þreyttir fætur
23.3.2011 | 12:48
Þessa dagana er ég voðalega eitthvað þreytt í löppunum, aðallega yfir ristarnar og jarkana. Held valdurinn sé bland af þrennu; færðinni í útihlaupunum, auknum brettahlaupum (og aukningu yfirhöfuð) og lélegum skóm á brettinu en Bandidosinn er líklega kominn á síðasta snúning (var að reyna að vera voða nýtin og klára þá alveg!). Lausnin: Krjúpa á kné og biðja um hellirigningu í nokkra daga og hlaupa í nýjum skóm. Þetta er ekkert flókið :)
Hlaup á laug: 23 km á brettinu í Laugum með Sigrúnu, Svövu og Siggu. Varð alveg orkulaus eftir 19 km þannig að það var ekki sjéns að ég nennti metranum lengra en 23. Note to self: Taka með orku á löngu æfingarnar, vatnið er bara stundum ekki nóg.
Hlaup á sunn: 8,2 km recovery. Var þreytt í fótunum fyrir æfinguna en leið miklu betur eftir hana. Snjór og rólegheit.
Hlaup á mán: 12 km - brettasprettir í mos. Tók 6*1000 (3 á 14,5 og 3 á 15).
Hlaup í gær: 9 km - Jensinn með Sif. Brekkan verður sífellt auðveldari ... meira að segja í snjónum :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)










